Kertasandur með ilm - COZY SHADOW
|| BY HN GALLERY
Breyttu uppáhalds skálinni þinni í kerti!
Veldu skál - Helltu kertaperlum í skálina - Kveiktu og njóttu notalegs logans & kertailmsins.
Upplýsingar:
• Náttúrulegt pálmavax
• Kertaþræðir fylgja með
• Umhverfisvænt
• Auðvelt er að skipta um brenndan þráð
Þyngd: 400gr
Mjúkur, rólegur og notalegur viðarilmur, skapaður fyrir látlausa og hlýja heimilisstemningu. Ilmurinn opnast með léttum tónum af honeysuckle, pelargóníu og bergamót sem gefa hreina ferskleikatilfinningu og mjúkan blómlegan blæ. Í hjartanu koma fram eikarmosi, tonkabaunir og rósaviður - hlýir og náttúrulegir tónar sem minna á rólegt heimili, viðaráferð og mjúka jarðliti. Sandalviður, hvitt amber, muskus og vetiver i grunninum skapa mildan, umvefjandi ilm sem er ekki yfirþyrmandi, heldur fyllir rýmið hljóðlega af hlýju og notalegheitum.
Toppnótur: Honeysuckle, pekargónía, bergamót
Hjartanóta: Eikarmosi, tonkabaunir, rósaviður
Grunnnótur: Sandalviður, hvítt amber, muskus, vetiver