Terms of service

Upplýsingar:

 

Stofan hár&verslun ehf

Kt. 410425-2460

VSK númer: 156765

Sími: 844-7884

Netfang: stofan@harogverslun.is

 

Stofan hár&verslun áskilur sér rétt til þess að hætta við pantanir, t.d. vegna rangrar verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Ef einhverjar spurningar vakna má hafa samband í gegnum tölvupóst: stofan@harogverslun.is. Við tökum vel á móti öllum spurningum og athugasemdum.

 

Persónuupplýsingar/trúnaður:

 

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

 

Afhending:

Við sendum allar pantanir með Póstinum að undanskildum pöntunum sem fara í heimkeyrslu innan Sauðárkróks.

Afhendingartími eru 2-4 virkir dagar að jafnaði.

Pantanir innan Sauðárkróks eru keyrðar út samdægurs virka daga ef pantað er fyrir kl 15. Sé vara ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna áætlaðan afhendingartíma vörunnar.

 Af pöntunum dreift af Póstinum gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Póstsins um afhendingar vörurnnar. Stofan hár&verslun ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist eða verður fyrir tjóni eftir að hún er send frá okkur er tjónið á ábyrgð kaupanda.

 

Stofan hár&verslun tekur ekki ábyrgð á að viðskiptavinir  séu með rétt merkta póstkassa eða póstlúgur, í þeim tilfellum þar sem merkinga er ábótavant mun Pósturinn senda pöntunina til baka og tilfallandi kostnaður lendir þá á kaupanda.


 

Verð á vöru og sendingarkostnaður:

 

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% og 11% vsk. Sendingarkostnaður bætist síðan við í greiðsluferlinu

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

.

Pakki á næsta pósthús: 1.490 kr.

Sendingarkostaður fellur niður ef pantað er fyrir 18.900 kr. eða meira.

Hægt er að sækja pantanir á Stofan hár&verslun, Kirkjutorgi 5, Sauðárkróki.

Frí heimkeyrsla er á Sauðárkróki.

 

Við bjóðum uppá greiðslu í gegnum Netgíró og öruggt vefsvæði Teya, þar er hægt að greiða með debit/kredit korti.

 

Skilafrestur/endurgreiðsla:

 

Skilafrestur vöru er 14 dagar frá kaupdegi gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Einungis er hægt að skila vörum sem eru ónotaðar og í upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið.

Endurgreiðsla fer fram þegar varan er komin aftur í hendur seljanda.

Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

 

Gallaðar vörur:

 

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup.

 

Lög og varnarþing:

 

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli.