Aurora Candles - Glæsileg glerkrukka með loki
Falleg og tímalaus glerkrukka frá Aurora Candlessem sameinar glæsilega hönnun og notagildi. Krukkan er úr vönduðu, reyklituðu gleri og henni fylgir stílhreint, gyllt lok með Aurora Candles merkinu.
Minimalísk hönnunin gerir krukkuna að fallegri viðbót við hvaða heimili sem er og skapar fágað og notalegt yfirbragð.
Krukkan hentar einstaklega vel fyrir kertasandinn og er tilvalin fyrir þá sem vilja skapa sitt eigið ilmkerti með persónulegum blæ.
Einföld, glæsileg og tímalaus hönnun sem passar inn á hvert heimili.