HN GALLERY x FANGAVERK
Í gegnum árin hafa HN gallery og Fangaverk verið í nánu samstarfi og brallað margt skemmtilegt. Hér er nýjasta samvinnuverkefnið þeirra!
Kertasandurinn vinsæli & sjóðheit ný vara frá Fangaverk steypt skál á fæti.
Tvenna sem fer vel á hverju heimili!
Fyrir þá sem þekkja ekki verkefnið - þá eru vörur Fangaverks framleiddar af föngum í fangelsum landsins. Vinnustaðir í fangelsum sem framleiða vörur eru hugsaðir sem hluti af grunnstarfi fangelsana til þess að útvega vistmönnum störf á meðan fangavist stendur.















